Flestir sem hafa verið hjá mér í detoxi eru sammála um það að það sem stóð mest upp úr í detoxunum síðustu árin hafi verið tónlistarsauna okkar á kvöldin og kælingin eftirá og spjallið sem við áttum saman.
Ég hef sett upp nýtt prógramm sem snýst einmitt í kringum saununa og aðhaldið/spjallið sem spinnaðist í kringum hana og ég ætla að bjóða upp ferskpressaða safa í 5 daga.
Svona virkar prógrammið:
// Þú færð fyrsta safaskammtinn keyrðan heim að dyrum á mánudeginum fyrir detoxið. Næstu safadaga færðu afhenta á Silfra Spa þegar þú kemur í saununa.
// Þú getur stundað vinnu eða skóla yfir daginn, við erum bara að hittast í saununni á kvöldin.
// Við verðum með tónlistarsauna og kælingu í heila viku – Við erum að hittast klukkan 20:00 og saunan hefst síðan klukkan 20:20 – laugardagur er frjáls og á sunnudeginum erum við klukkan 14:00 með fyrirlestur (hvað gerir maður svo eftir detox) og sauna. Frábær tónlist, núvitund, handklæðaveifingar og góður ilmur á teinunum.
// Í lokin fá allir nýju rafbókina mína sem kallast Blóðsykurlausnin og fjallar um blóðsykur líkamans og hvernig best er að halda honum í jafnvægi með fjórum “hökkum” Allir fá einnig aðgang að lokaðri FB síðu sem er aðhald, fræðsla og hvatning fyrir framhaldið.
// Staðsetning er Silfra Spa sem er staðsett á Hótel Íslandi, Ármúla 9. Splunkunýtt spa með frábærri spa-aðstöðu, stórum saunum, flotlaug, heitum potti, köldum potti og góðu setu/slökunarsvæði.
Allt innifalið, spa og safar verð:
5 daga detox 6 safar á dag – 59,000.-
7 daga detox 6 safar á dag – 79,000.-
Skráning eða frekari upplýsingar á gunni@habs.is eða Gunni: 774 7777