Munið þið ekki eftir íssamlokunum, eða Óreó ískökunum ? Þessar dásamlegu súkkulaði oopsies rifja upp gamlar syndir alveg með det samme. Uppskriftin átti upphaflega að vera með kremi á milli en mér fannst ískökur hljóma betur ! Enda sumarið handan við hornið …
90 gr rjómaostur
1/2 tsk vínsteinslyftiduft
1 msk kakó
3 msk Erythritol eða Xylitol (Now)
Rjómaostur og rauður þeytast svo saman ásamt sætuefninu, því næst fer kakóið og lyftiduftið í blönduna og að lokum veltið þið eggjahvítunum mjög varlega saman við deigið.
Búið til litlar kökur á bökunarpappír, ca 1 msk f. hverja köku.
2 msk sykurlaust súkkulaðisýróp (má sleppa en bæta þá við 1 msk af sætuefni)
2 msk xylitol eða erythritol
1/2 tsk vanilluduft.
Sprautið fyllingunni á kökurnar, leggið 2 og 2 saman í samloku og frystið.
1 msk kakó
2-3 msk möndlusmjör(Monki) eða hnetusmjör
sletta af rjóma til að þynna
3 msk erythritol
dash af salti
allt þeytt saman í mixer og svo sprautað á kökurnar í staðin fyrir rjómann.
Uppskriftina er að finna á blogginu hennar Maríu Kristu Hreiðarsdóttur – www.mariakristahreidarsdottir.blogspot.com/– smelltu hér