OK ég verð að viðurkenna það, ég er pínu tækjaóð þegar kemur að eldamennsku og sniðugheitum í eldhúsinu. Sennilega eitthvað svipuð barni í leikfangabúð eða karlmanni á bílasýningu, já eða konu á bílasýningu 😉
Ég var sem sagt að gera tilraunir með hörfræmjölsamloku, gerði hana fyrst í örbylgjunni en svo fékk ég fyrirspurnir um aðrar aðferðir því ekki eru allir jafn hrifnir af öbbanum góða svo ég fékk mér alvöru græju til að leysa málið. Skundaði í Elko og náði mér í ofurgræju sem hægt er að skipta um plötur í, s.s. f. belgískar vöfflur, grill og svo samlokurist 🙂 snilld. Hér er svo afraksturinn. Hörfræloka með skinku og osti.
Uppskrift að einni samloku 0.75 netcarb:
Uppskriftina er að finna á blogginu hennar Maríu Kristu Hreiðarsdóttur – www.mariakristahreidarsdottir.blogspot.com – hér