best þegar að hún er búin að malla lengi. Það er best að taka sér góðan tíma til þess að dúlla sér við súpugerð.
Það er líka svo notalegt að hafa góða súpulykt ilma um heimilið.
Mexíkósk kjúklingasúpa
Þessi uppskrift er fyrir 5 – 6 manns.
4 – 5 kjúklingabringa
1 rauð paprika
1 græn paprika
2 gulrætur
1/2 blaðlaukur
4 – 5 hvítlauksgeirar
1 laukur
1 grænt eða rautt chili, ég gleymdi að kaupa chili svo ég notaði 1 tsk af þurrkuðum chili pipar
2 msk olía
1 dós saxaðir tómatar
1 1/2 – 2 teningar af kjúklingakrafti
2 – 3 tsk karrý
2,5 lítri vatn
1 peli rjómi
1/2 – 3/4 úr krukku af Heinz chili tómatsósu (innsk.lkl hérna er hægt að nota tómatsósuns frá Walden Farms – án sykurs)
100 – 150 g rjómaostur
Aðferð:
Hitið olíu á pönnu við vægan hita, saxið grænmetið smátt og steikið í smá stund á pönnunni, bara rétt til
að fá smá gljáa. Setjið grænmetið í stóran pott, bætið vatninu , chili tómatsósunni, karrýinu, kjúklingateningum
og söxuðum tómötum saman við, leyfið þessu að malla á meðan þið steikið kjúklinginn.
Skerið kjúklinginn í litla bita og steikið á pönnu upp úr olíu, kryddið með chili, salti og pipar.
rjómaosturinn saman við.
Takið ykkur góðan tíma til að laga súpuna, ég leyfði henni að malla við vægan hita í nærri 2 klukkustundir en
þess þarf auðvitað ekki. Látið hana þó malla í lágmark 30 mín. Bragðbætið súpuna að vild, gæti verið að þið
viljið meiri karrý eða meiri pipar. Mikilvægt að smakka sig til!
Berið súpuna fram með sýrðum rjóma, rifnum osti og nachos flögum, sem hver og einn bætir á sinn disk eftir smekk.
En að mínu mati er hún betri með rjómanum, elsku rjómanum.